Velkomin í Reykjanesapótek
Sjálfstætt starfandi apótek sem veitir faglega og persónulega þjónustu
Reykjanesapótek opnaði í lok mars 2017 þegar lyfjafræðingurinn Sigríður Pálína Arnardóttir flutti til Íslands eftir að hafa starfað sem lyfsali í Noregi.
Sigríður Pálína er fædd og uppalin í Njarðvík og hefur lengi átt sér þann draum að opna eigið apótek í Reykjanesbæ.
Önnur staðsetning Reykjanesapóteks í Fitjum opnaði svo 2022.

Lyfjaskömmtun
Við bjóðum viðskiptavinum okkar bæði vélskömmtun og handskömmtun lyfja.
Sjúkrakassar
Við bjóðum upp á víðtæka þjónustu á hjúkrunarsviði. Við erum með sérhæfðar hjúkrunarvörur á lager og getum sett saman stórar eða smáar sjúkratöskur fyrir einstaklinga og allar stærðir fyrirtækja og stofnanna.
Heilsufarsmælingar
Við mælum blóðþrýsting, blóðsykur og súrefnismettun endurgjaldslaust. Einnig er hægt að láta mæla D vítamín og járn gegn vægu gjaldi. Engar tímapantanir, heldur þarf bara mæta á svæðið á Hólagötu eða Fitjar.
Lyfjastoð
Lyfjastoð er persónuleg viðtalsþjónusta sem fer fram í Reykjanesapóteki og gefur viðskiptavinum okkar tækifæri til að spyrja allra þeirra spurninga sem þau hafa um lyfjameðferð sína í persónulegu samtali við sérþjálfaðan lyfjafræðing.
Frá upphafi höfum við lagt okkur fram við að bjóða upp á úrval af gæða vörum
Við trúum því að heilsa og vellíðan byrji á því að hafa aðgang að réttu vörunum á réttum tíma. Þess vegna vinnum við jafnt og þétt að því að velja inn vandaðar lausnir sem uppfylla strangar kröfur um gæði og áreiðanleika. Hjá okkur finnur þú fjölbreytt úrval sem styður daglegt líf, heilsu og hreinlæti á einfaldan og öruggan hátt. Markmið okkar er að skapa notalega þjónustuupplifun þar sem viðskiptavinir finna að vel er hlúð að þörfum þeirra. Við erum alltaf tilbúin að leiðbeina og hjálpa til, hvort sem leitað er að sértækum vörum eða góðum ráðleggingum. Með fagmennsku og hlýju viljum við tryggja að þú finnir ávallt það sem hentar þér og þínum.

