Lyfjastoð
Persónulegt viðtal við sérþjálfaðan lyfjafræðing-
Lyfjastoð er persónuleg viðtalsþjónusta sem fer fram í Reykjanesapóteki og gefur viðskiptavinum okkar tækifæri til að spyrja allra þeirra spurninga sem þau hafa um lyfjameðferð sína í persónulegu samtali við sérþjálfaðan lyfjafræðing.
Þjónustan er kjörin fyrir alla sem taka lyf við hjarta- eða æðasjúkdómum á borð við blóðþynningarlyf, blóðþrýstings- og blóðfitulækkandi lyf. Þar sem um þróunarverkefni er að ræða er þjónustan fyrst um sinn bundin við einstaklinga sem taka lyf í þessum lyfjaflokkum.
Verkefnið er unnið af Reykjanesapóteki í samstarfi við Heilbrigðisráðuneytið og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja – HSS.
Lyfjafræðingar okkar eru þegar byrjaðir að bóka viðtalstíma.
Tímapöntun í Lyfjastoð:
Reykjanesapótek Hólagötu
Hólagata 15
260 Reykjanesbæ
Sími: 421-3393
Opnunartímar
Virkir dagar: 9-20
Laugardagar: 12-19
Sunnudagar: 12-19
Reykjanesapótek Fitjar
Fitjar 2
260 Reykjanesbæ
Sími: 421-3383
Opnunartímar
Virkir dagar: 10-19
Laugardagar: 11-15
Sunnudagar: lokað