Viðskiptaskilmálar
1. Almennt
Viðskiptaskilmálar þessir gilda um sölu á vörum og/eða þjónustu í gegnum netverslun Reykjanesapóteks kt. 471016-0630, með lögheimili að Hólagötu 15, 260. Með því að leggja inn pöntun samþykkir kaupandi skilmála þessa.
2. Vörur og verð
Allt verð í netverslun er gefið upp í íslenskum krónum og er með virðisaukaskatti. Reykjanesapótek áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara. Verð sem birt er við pöntun er endanlegt verð fyrir viðkomandi kaup.
3. Sendingarkostnaður
Sé valið að fá vöruna senda heim eða á pósthús leggst sendingarkostnaður ofan á pöntun áður en gengið er frá greiðslu.
3.1 Heimsending innan Suðurnesja á vegum Reykjanesapóteks
Reykjanesapótek býður upp á heimsendingu á eigin vegum innan Suðurnesja. Heimsending heim á vegum Reykjanesapóteks kostar 1.390 kr. Ef pantaðar eru tvær eða fleiri lyfjaávísanir eða ef verslað er fyrir 9.900 eða meira fellur sendingarkostnaður niður.
3.2 Sendingar með póstinum
Reykjanesapótek býður upp á sendingar með Póstinum hvert á land sem er.
Heimsending með póstinum kostar 1.390 kr.Pakki á pósthús kostar 990 kr.
Ef pantaðar eru tvær eða fleiri lyfjaávísanir eða ef verslað er fyrir 9.900 eða meira fellur sendingarkostnaður niður.
4. Afhending
Vörur eru afhentar samkvæmt þeim afhendingarmöguleikum sem kaupandi velur við pöntun. Afhendingartími er áætlaður og getur breyst vegna aðstæðna sem Reykjanesapótek ræður ekki við.
5. Greiðslur
Hægt er að greiða fyrir pantanir í netverslun Reykjanesapóteks með öllum helstu debet- og kreditkortum. Færsluhirðing fer í gegnum örugga greiðslugátt Straums.
6. Skilaréttur og skilafrestur
Kaupandi hefur 30 daga skilafrest frá móttöku vöru, gegn framvísun kvittunar eða staðfestingar á kaupum. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaup.
Ekki er hægt að skila lyfjum sem hafa verið afhent úr húsi. Ef lyfið er rangt afgreitt af hálfu Reykjanesapóteki endurgreiðir seljandi kostnaðarupphæð lyfsins.
7. Gölluð vara
Reynist vara gölluð gilda ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi skal tilkynna Reykjanesapóteki um galla innan sanngjarns tíma eftir að hann verður var við gallann.
8. Ábyrgð Reykjanesapóteks
Reykjanesapótek ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til rangrar notkunar vöru eða atvika sem Reykjanesapótek hefur ekki stjórn á, svo sem óviðráðanlegra ytri aðstæðna.
9. Persónuupplýsingar
Meðferð persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gildandi persónuverndarlög og persónuverndarstefnu Reykjanesapóteks, sem aðgengileg er á vefsíðu netverslunar.
10. Lögsaga og gildandi lög
Um viðskiptaskilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur skal hann eftir atvikum borinn undir íslenska dómstóla.